30.9.2009 | 23:18
Skammist ykkar stjórnendur og nýju ritstjórar Moggans!!!!
Eftir nýlegar uppsagnir fjölda góðra blaðamanna og annarra starfsmanna af Mogganum þá er tekið til við það sem væntanlega hafa verið kröfur af ykkar hendi - að byggja ykkur skrifstofur. Hann Styrmir var búinn að búa til þennan góða starfsanda þarna að manni virtist, með því að opna allt gólfið. Allir jafnir, allir vinna saman. Þá komið þið inn og krefjist þess að fá lokaðar skrifstofur, eða hvað? Hvað kosta nokkrir iðnaðarmenn í nokkra daga? Gæti það ekki bara nálgast það að vera a.m.k. árslaun eins blaðamanns?
Hvað fáið þið í laun á mánuði? Árslaun a.m.k. eins blaðamanns?
Ég skil ekki svona ákvarðanir og finnst þær SVÍVIRÐILEGAR. Getið þið gefið mér svör við því hvernig það telst hagkvæmt að segja upp fullt af fólki og ráða í staðinn ykkur tvo (sennilega á himinháum launum) OG byggja nýjar skrifstofur fyrir ykkur?
Afi minn er búinn að vera áskrifandi að blaðinu í tugi ára, hann mun segja upp blaðinu á morgun. Hann er nefnilega ennþá skýr í kollinum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2008 | 22:05
"I´m screwed"...eins og maðurinn sagði.
Mjólkurkvótakerfið er torf.
Hagfræði er ekki eins einföld og hún lítur út fyrir að vera.
Stefnugreining er eitthvað sem fólk framkvæmir eftir sérstakt margra ára nám í bara því.
En samt datt mér í hug að gera BA ritgerð sem inniheldur stefnugreiningu á mjólkurkvótakerfinu, sem er fyrst og fremst hagfræði.
Spurning dagsins er því: Hef ég ofurtrú á sjálfri mér?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2008 | 12:38
Heilbrigðisbáknið. Eru læknarnir óhæfir?
Þetta heitir ekki kerfi!! ég mun aldrei láta það út úr mínum munni heyrast að kalla heilbirgðisbáknið kerfi því það virkar ekki á neinn hátt sem það á að gera. Kerfi virkar, bákn ekki.
Ég er reið! Mjög reið! Alveg ævareið.
Ég er veik og veit ekki hvað er að mér.
Hvers á ég að gjalda þegar ég hef borgað skatt af allri minni vinnu um ævina að ég sé send inn á stofu til manns yfir sextugt í hvítum slopp sem hlustar ekki á mig og sendir mig svo út með lyfseðil uppá næstum 10 þúsund krónur og reikning uppá næstum því 10 þúsund krónur!!?!?!?!?!
Ekki nóg með að ég hafi ekki og muni ALDREI hafa efni á að kaupa íbúð því fasteignaverð er komið upp úr öllu valdi og í engu samræmi við það sem maður fær fyrir peningana, þá þarf ég að eyða síðustu krónunum af kaupinu mínu í lyf, því ég vinn svo mikið að ég er undir miklu álagi og á auðvelt með að veikjast, en af hverju ætli ég vinni svona mikið??? Til að geta komið undir mig fótunum!!
Þó ég sé reið yfir lyfseðlinum og reikningnum og skattinum og fasteignaverðinu, þá er ég samt reiðust yfir því að í þessu bákni sem við köllum kerfi séu að mestu leyti karlar komnir yfir sextugt sem geta varla lesið texta á blaði, skrifað texta á blað og hvað þá heyrt það sem þú segir. Babla bara eitthvað um áttirnar, kvótakerfið, ættfræði og veðrið.
Mér er ofboðið og jafnvel misboðið. Íhuga alvarlega að flytja út landi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.2.2008 | 23:47
Jóhanna og Kastljósið...
Hér er hugleiðing sem mig langaði að koma á framfæri, frá betri helmingnum mínum:
"Hvers vegna sagði Jóhanna upp? Eins og fram hefur komið hefur Jóhanna Vilhjálmsdóttir sagt starfi sínu sem einn umsjónarmanna Kastljóssins lausu. Ekki hefur fengist uppgefið hvers vegna Jóhanna sagði upp, en í 24 stundum í gær kom fram að um persónulegar ástæður sé að ræða. Á sama stað kemur fram að gárungarnir svokölluðu hafi velt því fyrir sér hvort uppsögnin tengist því að Jóhanna sé dóttir Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en eins og margir eflaust muna saumaði Sigmar Guðmundsson ansi vel að Vilhjálmi í viðtali í Kastljósinu fyrir skömmu. Ég er hræddur um að gárungarnir þurfi að finna aðra ástæðu fyrir uppsögninni því Jóhanna hefur hingað til ekki verið á móti því að saumað sé að mönnum. Skemmst er að minnast viðtals hennar við Þórólf Árnason, þáverandi borgarstjóra, í Íslandi í dag á Stöð 2 árið 2004. Þar saumaði Jóhanna mjög hressilega að Þórólfi, sem síðar axlaði ábyrgð á olíuhneykslinu, einn manna. Þetta gerði Jóhanna án þess að hika, þótt allir vissu að faðir hennar væri pólitískur andstæðingur Þórólfs. Hún segir því varla upp vegna þess að hlutlaus maður tekur viðtal við föður hennar. Eða hvað?"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2008 | 19:16
Af hverju er fréttamaður með í för?
|
Flugmanns leitað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2007 | 12:34
Neytendavaktin
Ég er svo reið að ég varð að skrifa færslu. Vill einhver sem er góður að koma orði fyrir sig, í rituðu eða töluðu máli, fara að tala opinberlega um þjónustuleysi á Íslandi??? Ég er ekki nógu góð í því til að ég taki það að mér, en ég er orðin verulega pirruð á fyrirtækjum eins og VODAFONE, HIVE, ORKUVEITU REYKJAVÍKUR, MÖMMU.IS o.fl. Þessi fyrirtæki bjóða upp á nákvæmlega ENGA ÞJÓNUSTU.
Ég sem neytandi á ekki að þurfa að sitja í símanum í 6-10 klukkustundir samtals til að koma mér upp interneti, síma og sjónvarpi. Þessi fyrirtæki eiga að ÞJÓNUSTA MIG, en ekki láta mig bíða í símanum og vísa svo hvort á annað endalaust. Síðan loksins þegar þessi pakki er komin upp, þá birtast hinir og þessir REIKNINGAR Á HEIMABANKANUM MÍNUM sem ég hafði ekki hugmynd um að myndu birtast!!! Og var ekki einu sinni sagt frá að mundu birtast þar. Ég bað til dæmis aldrei um að vera í samskiptum við Vodafone þegar ég fékk sjónvarpið í gegnum ljósleiðarann, en það virðist vera óhjákvæmilegt. Hvers vegna??? Ég vil ekkert hafa að gera með þetta fyrirtæki, það veitir mér enga þjónustu og hefur aldrei gert. Ég sagði upp gsm-símanum mínum þar því ég fékk himinháa reikninga frá þeim, er farin að halda að forstjórinn þeirra hafi potað öllum sínum símtölum inn á minn reikning til að þurfa ekki að borga þau sjálfur, því sjálfsagt fær hann ekki nóga peninga fyrir alla vinnuna sem hann innir af hendi.
Vaknið þið íslendingar!! Ekki bara borga hugsunarlaust fyrir allt og yppa öxlum, hvernig væri að við færum að sniðganga þá aðila sem koma fram við okkur eins og við séum skítur undir skónum hjá þeim. Þá mætti byrja á öllum þessum ÞJÓNUSTUfyrirtækjum eins og þau kalla sig. Það er allt hægt ef viljinn ef fyrir höndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.5.2007 | 15:25
Stjórnleikar og tónmál...
Jæja, mánuður síðan ég bloggaði, sumarkoman gerir það að verkum að maður nennir ekki að hanga við tölvuna og gerir frekar eitthvað allt annað sem betur fer.
En ég ætla ekki að blogga um nýju ríkisstjórnina. Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Ég verð bara að fylgjast með gangi mála. En ég ætla að vona að Hagar sjái sér sóma í að hætta að auglýsa snögga aflífun íslenskra bænda í blöðunum. Já, það þýðir ekkert að afnema alla tolla undir eins, ég er sammála því að styrkjakerfið er úrelt og það þarf að endurskoða, en það þarf að gerast á réttan hátt, engar skyndiákvarðanir takk! Þær gætu kostað íslensku þjóðina mikið. Veit ekki alveg með þessa ákvörðun um að sameina sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneyti. Mér finnst mikið liggja fyrir af verkefnum í hvoru fyrir sig og veit ekki hversu langt Einar K.Guðfinnsson kemst með öll þau mál "einn síns liðs", þrát fyrir mannkosti hans. En já, ég ætlaði ekki að blogga um þetta...
Ég fór á tónleika í gær, sem er ekki í frásögur færandi nema hvað að það tókst bara á engan hátt á klára þá, allavega ekki eins og hljómsveitin hefði viljað...sem er leiðinlegt. EEEEN þeir redduðu sér úr þessu á skemmtilegan hátt og ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel, enda voru margar hljómsveitir búnar að spila þegar þeir stigu á svið. Ég missti reyndar af Hjaltalín og FM Belfast, en sá Sprengjuhöllina og þeir voru mjög þéttir. Ég hef reyndar ekki mikið hlustað á þá, en þeir eru hressandi, hafa mjög gaman af því sem þeir eru að gera og það smitar út frá sér til hlustenda.
Síðan komu MOTION BOYS sem eru argasta snilld, það ferskasta sem ég hef heyrt í langan tíma:) Ef ég á að líkja þeim við eitthvað þá mundi ég segja GusGus vs.Trabant...enda eru reyndar tveir meðlimir Trabant í Motion Boys, Viðar Gísla og Gísli Galdur...eða voru allavega að spila með þeim í gær. Birgir Ísleifur er frábær söngvari og lagahöfundur, það sýndi sig þegar hann byrjaði tónleikana á órafmagnaðri útgáfu af "Hold me closer..." spilaði á píanó, síðan komu hinir meðlimir sveitarinnar inn og þeir náðu einu heilu lagi og öðru hálfu áður en rafmagnið sló út. Þeir eru bara einfaldlega OF HEITIR...eftir þrjár tilraunir til að halda áfram drógu þeir fram flygilinn og Birgir tók lokalag, sem ég man reyndar ekki hvað hét, en það var flott! Þetta var æðislegt móment, hinir í hljómsveitinni+Sprengjuhöllin stilltu sér upp við flygilinn, drukku hvítvín, sungu með og veittu stuðning. Sennilega ekki gaman að vera að halda fyrstu tónleikana og þurfa að hætta vegna tækilegra örðugleika. Fall er fararheill, næstu tónleikar verða frábærir!
Ég hlakka mjög til næstu tónleika með þeim og vona að þeir verði von bráðar á dagskrá!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2007 | 23:57
Hvar er ég?
Jæja
Það verður víst ekkert mikið um blogg hjá mér næstu tvær vikur. Kem aftur galvösk þarna rétt fyrir kosningar og Eurovision! Dagskráin hjá mér er skóli frá 9-21 alla virka daga, fyrir utan það læra heima fyrir þrenns konar skóla, rækta líkama og sál og reyna að taka þátt í kosningabaráttu.
Þangað til næst! Veriði hress, ekkert stress, bless.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2007 | 12:39
VIllandi fyrirsögn
takmarkaðan innflutning erfðaefnis til tilrauna. Ég held að
meginatriðið sé HVERSU MARGIR vilji flytja inn nýtt kúakyn. 26 á móti
7. Og þá er spurningin hvort þetta sé góð eða slæm þróun. Ef bændur
flytja inn nýtt kúakyn geta þeir þá enn krafist þess að landið verði
ekki opnað fyrir innflutningi landbúnaðarvara annars staðar frá?
|
Kúabændur vilja takmarkaðan innflutning erfðaefnis í tilraunaskyni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2007 | 15:32
Bændablús
Já, en þá þýðir lítið að vera hlynntur því að fella niður innflutningstolla einn tveir og kviss bamm búmm!!! Ef það verður gert þá tel ég að meirihluti íslenskra bænda muni fara á hausinn. Og þá munum við ekki eiga þessar góðu landbúnaðarvörur okkar sem fólk vill greinilega hafa.
Sú aðferð sem farin var á Nýja-Sjálandi og hefur mikið verið talað um hér í sambandi við höft og tolla, þ.e. að fella niður alla tolla í einu og opna landið alveg, hún gengur ekki hér á Íslandi, við erum of lítil og getum ekki keppt á heimsmarkaði með landbúnaðarafurðir. Þetta gekk á Nýja-Sjálandi því þeir eru með 40% af heimsmarkaði af mjólkurútflutningi...ég sé það sama ekki gerast hér með þá fáu bændur sem eftir eru. Eða er það svartsýni í mér? Ég held ekki.
Stoppum aðeins og skoðum málið, líkt og með stóriðjuna!
|
Langflestir vilja íslensku mjólkina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)


margretsverris
730
villivill
elvira
islandshreyfingin
solrun
olafurfa
kristinmaria
davidg
fanney
johannalfred
sigruningibjorg
ingisund
kristinhrefna
arnih
vakafls
andriheidar
nonninn
veraknuts
gun
erlaosk
helgahaarde
vitinn
reynir
vilby
svp
alexm
malacai
asdisran
blogger
deiglan
dianadv
eyjolfuringvi
freyson
ingo
jonbondi
gummiarnar
majabet
omarragnarsson
oskvil
siggithor
steinibriem
torduringi
hnefill






